Loftslagsvaka í Borgarnesi 12. desember

Environice stendur fyrir loftslagsvöku í Borgarnesi laugardaginn 12. desember nk. kl. 17.00. Vakan er hluti af alþjóðlegu átaki til að minna leiðtoga þjóða heims á mikilvægi þess að þeir nái metnaðarfullu og réttlátu samkomulagi á leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn, um aðgerðir til að draga úr loftslagsbreytingum af mannavöldum.

 

Loftslagsvakan í Borgarnesi verður haldinn við inngang Skallagrímsgarðsins, og er reiknað með að hún taki svo sem eina klukkustund. Þegar hafa þrjár slíkar vökur verið skráðar hérlendis, en samtals er vitað um 2.059 slíkar uppákomur í 115 löndum. Reyndar má gera ráð fyrir að töluvert fjölgi á þeim lista þegar nær dregur.

 

Dagskrá loftslagsvökunnar er einföld. Engar ræður verða haldnar, heldur aðeins skipst á fróðleik um loftslagsmál eftir því sem tilefni gefst. Þáttakendur eru hvattir til að mæta með kerti eða kyndla. Best er að kertin séu úr endurnýjanlegu efni, svo sem tólg eða stearíni, því að kerti úr hefðbundnu parafíni auka jú á loftslagsvandann. Margt smátt gerir eitt stórt! Þar sem ekki verður boðið upp á veitingar á staðnum er líka góð hugmynd að taka með sér heitt kakó á brúsa.

 

Eins og fyrr segir verða atburðir af þessu tagi haldnir í öllum heimshornum á laugardaginn. Skilaboðum frá þessum loftslagsvökum verður komið til Kaupmannahafnar í formi stuttra frásagna og mynda frá öllum atburðunum, í þeim tilgangi að sýna að almenningur lætur sér annt um loftslagsmál og þar með um velferð komandi kynslóða.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir á loftslagsvökuna. Gaman væri ef sem flestir myndu skrá sig á síðunni https://secure.avaaz.org/en/real_deal_rsvp/?id=142624&cts=1260283705&m=521.

 

Loftslagsvökur verða einnig haldnar í Reykjavík og í Stykkishólmi, sjá m.a. http://www.nsv.is/091204_metndadarfullan_bindandi_og_sanngjarnan_samning_i_koben.htm. Hægt er að sjá staðsetningu allra viðburðanna á  http://www.avaaz.org/real_deal_map.

 

8. desember 2009


Til baka


yfirlit frétta


 
  Forsíða
  Fréttir
  Um Environice
  Verkefni
  Fróðleikur
  Alþjóðasamstarf
  Mat á umhverfisáhrifum
  Útgáfa
  Hafðu samband
  Leit